Víkurflóð er í rétt sunnan við Kirkjubæjarklaustur við þjóðveg 204, í um 260 km fjarlægð frá Reykjavík, og 4km suður af Kirkjubæjarklaustri.
Vatnið er um 12 ha. að stærð og um þriggja metra djúpt.
Í vatninu er bæði sjóbirtingar og bleikjur sem ganga upp Skaftá og þaðan um læk inn í Víkurflóð. Auk þess er staðbundin bleikja og urriði í vatninu.
Stærð fiska er allt frá smáfiski upp í 5-6 punda fiska. Sjóbirtingur finnst víðast hvar, einnig í sefinu sunnanmegin í vatninu.
Veiði er heimil í öllu vatninu, og er heimilt að veiða allan sólarhringinn, allt árið um kring.
Athugið að þegar líður á sumarið vex gróðurhringur upp úr vatninu sem getur gert spúnaveiði erfitt fyrir.
Heimilt er að veiða með flugu, maðk og spón. Góð aðstaða er til fluguveiða.
Yfirleitt gefur best árla eða seinnipart dags.
Vinsælar flugur: