Vatnsdalsvatn er í Vatnsfirði á Barðaströnd og er um 2,2 km2 að flatarmáli, 8 m. yfir sjávarmáli og er mesta dýpi um 30 m. Vatnið er um 2,6 km. að lengd og um 1 km. þar sem það er breiðast. Mjög aðdjúpt er vestan megin við Vatnsdalsvatn en aðgrynnra að austan.
Talað er um að þetta svæði sé með þeim fallegri á Íslandi.
Vatnsdalsvatn er í um 340 km fjarlægð frá Reykjavík ef farið er um Hvalfjarðargöngin og um 55 km frá Patreksfirði. Hægt er að stytta leiðina frá Reykjavík með því að taka ferjuna Baldur frá Stykkishólmi til Brjánslækjar, sem er í um 8 km. fjarlægð frá Vatnsdal.
Veiði er heimil í öllu vatninu, nema við ósa efri Vatnsdalsár og við útfall vatnsins, þessir staðir eru greinilega merktir.
Mest er af bleikju í vatninu, sjóbleikju og einstaka lax ár hvert. Mest veiðist af 1-3 punda fiski og á hverju sumri veiðist einnig töluvert af vænni bleikju, allt að 6,5 pundum.
Daglegur veiðitími er frá kl 7:00 til kl 22:00 út tímabilið sem spannar frá 1. júní til 30. september ár hvert, en besti veiðitíminn er frá seinnipart júní fram í miðjan ágúst.
Leyfilegt agn er fluga, maðkur, og spónn.
Algengustu veiðistaðirnir við Vatnsdalsvatn eru við Undir Kálfahjalla á Viteyri, sem er fyrir miðju vatninu vestan megin og Kofanesi, sem er fremst í vatninu. Um 30 mín. gangur er að Lambagilseyrum, austanvert við vatnið. Við strandlengjuna á þessari gönguleið eru fjölmargir veiðistaðir. Ekki er leyfilegt að veiða í ám, sem tengjast vatninu. Mörk vatnsins og ánna eru sérstaklega merkt.
Vatnsdalsvatn – Vinsælar flugur: