Tungufljót er 4 stanga silungsveiðiá í Skaftárhreppi, Vestur-Skaftafellssýslu í um 232 km fjarlægð frá Reykjavík og í um 30 km fjarlægð frá Kirkjubæjarklaustri.
Þetta er vantsmikil bergvatnsá sem á upptök sín á hálendinu ofan Skaftártungu, auk ýmissa lækja sem koma frá Bláfjalli. Tungufljót sameinast svo Ása-Eldvatni þegar komið er niður á láglendið.
Tungufljótið rennur um mjög fjölbreytt og fallegt landslag þar sem stundum er um að ræða hraun, og annarstaðar rennur það um þrönga farvegi með grónum bökkum.
Aðallega er veitt hér sjóbirtingur sem getur orðið rígvænn og hafa hér veiðst yfir 20 punda sjóbirtingar í gegnum tíðina. Einnig er bæði staðbundin bleikja í ánni, og slæðingur af laxi gengur einnig upp ánna.
Það eru ekki mjög margir veiðistaðir í Tungufljóti, en þeir eru allflestir mjög góðir.
Umsögn Veiðistaðavefsins
Verð veiðileyfa
Aðkoma að veiðistöðum
Umhverfi
Almenn ánægja
Mjög gott
Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.
Tungufljót – góðar flugur: