Þverá er í Þverárdal, í um 140 km fjarlægð frá Reykjavík.
Áin rennur í Haukadalsá við veiðistaðinn Blóta, rétt fyrir neðan veiðihús Haukadalsár í Dölum.
Þverá er lítil og nett einnar stanga á og er áin 13 kílómetra löng með aragrúa ómerktra hylja. Áin hlykkjast niður eyðidal og myndar marga skemmtilega hylji og strengi á leið sinni niður dalinn. Enginn vegur er við ánna og því þurfa veiðimenn að vera tilbúnir að hafa fyrir veiðinni og ganga 10-20 kílómetra yfir daginn.
Að vera við veiðar í Þverá er frábær skemmtun og ævintýri líkast og því kjörin fyrir þá sem eru til í að leggja land undir fót í skemmtilegri veiðiferð.
Áin hentar einstaklega vel fyrir alla þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fluguveiðinni. Fyrir þá sem hafa gaman af nettri veiði og útivist þá er þessi á algjörlega kjörin.
Veitt er á eina stöng á dag í Þverá í Þverárdal.