Umsögn Veiðistaðavefsins
Verð veiðileyfa
Aðkoma að vatninu
Umhverfi
Almenn ánægja
Frábært
Umsögn : Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.
Þingvallavatn er í Þingvallasveit
Þingvallavatn í landi þjóðgarðsins er í um 100 m. hæð yfir sjávarmáli og mælist um 84 km² að flatarmáli. Mesta dýpi er um 114 m. Vatnið er eitt vinsælasta veiðivatn á landinu og á sér stóran hóp af fastagestum. Náttúrufegurð og saga gerir Þingvallavatn einstakt meðal vatna landsins. Mikið er að djúpum gjám í vatninu.
Góð aðstaða fyrir veiðimenn
Búið er að setja upp mjög góða aðstöðu fyrir veiðimenn og tjaldgesti við Vatnskot. Þar eru smáhýsi með snyrti- og eldunaraðstöðu og upplýsingum um vatnið og lífríki þess. Veiðiaðstaða er fyrir hreyfihamlaða og gott aðgengi að vatninu.
Handhöfum Veiðikortsins er heimilt að veiða fyrir landi þjóðgarðsins frá Arnarfelli að Öxarárósi gegnt Valhöll. Öll veiði í Öxará er bönnuð. Hægt er að fá kort yfir veiðisvæðið um leið og veiðimenn skrá sig í þjónustumiðstöð.
Tjaldleyfi er hægt að kaupa í þjónustumiðstöðinni. Einungis er leyfilegt að tjalda á sérmerktum tjaldstæðum. Óheimilt er að nota tjaldvagna eða fellihýsi á tjaldstæðinu í Vatnskoti.
Helstu veiðistaðir eru í Lambhaga, Vatnskoti, Vörðuvík, Öfugsnáða, Lambhaga Nautatanga og Hallvík.
Veiðibann er í Ólafsdrætti frá 1. júlí til 31. ágúst vegna hrygningar bleikjunnar.
Í vatninu eru 4 tegundir af bleikju sem og víðfrægur urriðastofn. Algeng stærð á bleikjunni er frá hálfu pundi upp í 3 pund. Bleikjutegundirnar eru: Kuðungableikja, sílableikja, murta og gjámurta. Bleikjuafbrigðin hafa þróast í vatninu á síðustu 10.000 árum.
Fluguveiðitímabil hefst 20. apríl og stendur til 31. maí. Þá má einungis veiða á flugu og öllum urriða skal sleppt.
Almennt veiðitímabilið hefst 1. júní og því lýkur 15. september og daglegur veiðitími er frjáls út allt tímabilið.
Eingöngu leyfð veiði á flugu, maðk og spón. Nefna má margar góðar flugur, en mest veiðist á litlar silungapúpur eins og t.d. Peacock, Watson Fancy, svartan Killer svo einhverjar séu nefndar. Oft reynist vel að nota langan taum og draga mjög hægt sérstaklega þar sem mikið dýpi er.
Jöfn veiði er í vatninu. Mjög góð bleikjuveiði er í maí, júní og júlí. Bestu líkurnar til að veiða urriða eru seint á kvöldin og árla morguns.
Veiðimenn og útivistarfólk eru vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið og skilja ekki eftir sig rusl. Óheimilt er að aka utan vega. Þingvallanefnd áskilur sér þann rétt að takmarka aðgang að vatninu gerist þess þörf.
Veiðikortið gildir aðeins fyrir landi þjóðgarðsins að undanskildu landi Kárastaða. Vatnið er mjög kalt og eru menn beðnir um að fara að öllu með gát. Öll veiði úr bátum er bönnuð korthöfum Veiðikortsins. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Vegna rannsókna á urriða í Þingvallavatni eru veiðimenn beðnir að athuga hvort veiddir urriðar séu mælimerktir. Merkin eru fest á baki urriðans og geta verið einföld slöngumerki eða rafeindamerki. Merkjum ber að skila til þjónustumiðstöðvar.
Ýmis kort af veiðisvæðum innan þjóðgarðsins:
Þingvallavatn – Vinsælar flugur: