Sænautavatn er á Jökuldalsheiði, við Sænautasel, og er með stærri vötnum á Jökuldalsheiði. Stærð þessa góða veiðivatns er 2,3 km², mesta dýpt 23 m og það er í 525 m hæð yfir sjó. Sænautavatn liggur frá norðri til suðurs og bærinn Rangalón, sem fór í eyði 1924 er við norðurenda þess.
Sænautavatn er um 600 km. frá Reykjavík, 74 km. frá Egilsstöðum 13 km, frá þjóðvegi eitt.
Bærinn Sænautasel sem hefur verið endurbyggður sem safn, er við suðurenda vatnsins. Hann fór í eyði 1943.
Úr vatninu rennur Lónskvísl, sem fellur í Hofsá í Vopnafirði. Sænautavatn er með djúpan skurð í miðju, dýpst 24 m.
Mikill og allvænn fiskur er í vatninu, 2-7 punda bleikja, sem þykir sérlega bragðgóð.
Netaveiði hefur ekki verið stunduð í vatninu um árabil.
Það grynnkar mjög til jaðrana og veiðist oft vel þar sem grynning og dýpi mætast. Um lágnættið er oft sérstaklega farsæl veiði.
Heimilit er að veiða í öllu vatninu, allan sólarhringinn, og er heimil veiði með maðki, flugu, og spón.
Jöfn veiði er yfir veiðitímann, þó yfirleitt meiri í maí og júní.
Hægt er að kaupa veitingar á Sænautaseli t.d. kaffi og lummur. Með fyrirvara er hægt að fá mat keyptan.
Sænautavatn – Vinsælar flugur: