Minnivallalækur er sjö kílómetra langur lækur í um 110 km fjarlægð frá Reykjavík skammt frá Hellu, á upptök sín í Landsveit og rennur í Þjórsá um Vindásós.
Talið að um 2 stofna urriða séu á sveimi í Minnivallalæk. Annar stofninn er svokallaður Þjórsárurriði sem kemur upp í lækinn á góðum dögum, og svo stofn sem að mestu heldur sig í efri hluta Minnivallalækjar og er mun dekkri en sá sem kemur inn á neðri svæðin.
Minnivallalækur á engan sinn líka í heiminum. Kristaltært og frjósamt lindarvatnið veitir umgjörð utan um einhver allra bestu búsvæði urriða sem fyrirfinnast á Íslandi og sennilega víðar um heim. Staðsetning lækjarins á yngsta landsvæði landsins gerir það að verkum að þegar vatnið kemur upp á yfirborðið undan hrauninu er hitastig þess mjög jafnt, leiðnin há og frjósemi mikil. Við þessi skilyrði er skordýralíf í blóma og sökum þess hversu hægrennandi lækurinn er hentar hann urriða feykivel.
Oft heyrum við efasemdaraddir frá erlendum veiðimönnum sem ekki trúa því að svona stórir urriðar geti leynst í svona litlum læk en menn þurfa ekki annað en velta við steini eða róta upp botninum til að skilja það hvernig urriðinn í Minnivallalæk getur náð slíkum stærðum sem raun ber vitni.
Þessi einstöku skilyrði gera það líka að verkum að fiskurinn er ljónstyggur og í ákveðnum veðurskilyrðum alveg ótrúlega erfiður við að eiga. En það er einmitt ástæðan fyrir því að bestu fluguveiðimenn heims leggja leið sína í Minnivallalæk ár hvert til að reyna við þennan fallega fisk sem lætur ekki ná sér svo auðveldlega. Þegar þeir svo setja í stærstu urriða sem þeir hafa nokkurn tímann séð er ferðin og erfiðið svo sannarlega búið að borga sig.
Það er óvíða í heiminum sem veiðimenn eiga möguleika á að setja í tíu punda urriða í pínulitlar þurrflugur í stærðum 18 og jafnvel minni. Á hverju ári veiðast urriðar sem eru um og yfir 10 pund og fjöldi fiska á bilinu 4-8 pund.
Vorið getur oft á tíðum verið stórkostlegt og fyrstu dagana eftir opnun 1. apríl er oft hægt að fá ævintýralega veiði á straumflugur og stærri púpur. Þegar líða tekur á vorið og snemmsumars kviknar á lífríki lækjarins fyrir alvöru og hlutverk veiðimanna fer að verða erfiðara, flugurnar minnka og þurrfluguveiðin byrjar.
Um mitt sumar veiða menn á pínulitlar flugur og örgrönnum taumum, skríða um bakkana og kasta á fiska sem menn sjá vel í kristaltæru vatninu. Þegar hausta tekur stækka flugur á ný og fiskur fer aftur að verða árásargjarn. Oft lenda menn í ævintýrum í haustveiðinni í læknum.
Minnivallalækur er sannarlega paradís urriðaveiðimannsins.
Minnivallalækur – Vinsælar flugur: