Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Laxárvatn – Skagaheiði

Laxárvatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Laxárvatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Laxárvatn er á norð-vestanverðri Skagatánni, um 0,3 km2 að flatarmáli og mest um 4 metrar að dýpt.
Bæði er bleikja og urriði í vatninu sem eingöngu er veitt í net af bændum.

Til að komast að vatninu þarf að fara um 2km langan jeppaslóða.

Veiðiréttur er hjá bænum Tjörn, en engin veiðileyfi eru seld í vatnið.
Frekari upplýsingar um veiði í vatninu má fá hjá Sigurlaugu Kristjánsdóttur á bænum Tjörn í síma 452-2874

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Laxárvatn – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...