Blanda 2 er annað svæðið í Blöndu, sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá Reykjavík. Hún á uppruna sinn í Hofsjökli en einnig renna í hana fjölmargar bergvatnsár af húnvetnsku heiðunum. Áin er um 125 km að lengd, sem gerir hana að áttundu lengstu á landsins, og er vatnasviðið ...
Lesa meira »Laxveiði
Blanda 1 neðsta svæði Blöndu
Blanda 1 er neðsta svæði Blöndu, sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá Reykjavík. Hún á uppruna sinn í Hofsjökli en einnig renna í hana fjölmargar bergvatnsár af húnvetnsku heiðunum. Áin er um 125 km að lengd, sem gerir hana að áttundu lengstu á landsins, og er vatnasviðið um ...
Lesa meira »Álftavatn – Sogið
Álftavatn er í Soginu, en Sogið er 19 kílómetra löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni. Það er vatnsmesta lindá landsins með meðalrennsli upp á 110 m³/s. Mikil lax- og silungagengd er í ánni, en hún minnkaði þó til muna þegar Ljósafossstöð, fyrsta af þremur virkjunum árinnar, var byggð. Hinar virkjanirnar eru Steingrímsstöð og Írafossstöð. Sogið mætir Hvítá og myndar Ölfusá ...
Lesa meira »Hallá, við Skagaströnd
Hallá er á norðurlandi sem fellur í Húnaflóa rétt utan við Skagaströnd 280 km fjarlægð frá Reykjavík. 10 mín akstursfjarlægð frá Blönduós. Þetta er 16 km. löng dragá, en veiðisvæði árinnar er hinsvegar um 10 km að lengd. Það eru margir maríulaxarnir sem komið hafa úr Hallá sem er tilvalin fyrir fjölskyldur og minni hópa. Þetta er lítil og viðkvæm ...
Lesa meira »Geirlandsá
Geirlandsá á Síðu er bergvatnsá sem er staðsett í V-Skaftafellssýslu í um 275 km fjarlægð frá Reykjavík, og einungis í um 3 km fjarlægð frá Kirkjubæjarklaustri. Geirlandsá á upptök sín uppi á vesturhálendi Kaldbaks í Geirlandsbotnum sem liggur í um 600 metrum yfir sjávarmáli, og er lengd hennar um 22 km. Áin er fiskgeng upp að Hagafossi sem er um ...
Lesa meira »Norðlingafljót
Norðlingafljót er ein fallegasta laxveiðiá landsins, en áin á frumupptök í Efri Fljótadrögum, uppi undir Langjökli. Norðlingafljót að hluta til dragá en einnig með veruleg lindáreinkenni. Frá upptökum rennur það til vesturs, norðan Sauðafjalla, Þorvaldsháls og Hallmundarhrauns uns það nær byggð, efst í Hvítársíðu. Á þessari leið falla til þess ýmsir lækir og kvíslar úr vötnum og uppsprettum. Einnig smáar ...
Lesa meira »Þverá-Kjarrá
Þverá-Kjarrá í Borgarfirði á upptök sín í vötnum inn á Tvídægru við Kvíslamót en frá þeim stað er aðeins steinsnar að upptökum Núpsár í Miðfirði. Frá Tvídægru rennur áin niður Kjarrárdal og þar sameinast henni hliðarárnar Krókavatnsár og Lambá. Þverá og Kjarrá í Borgarfirði eru í raun ein og sama áin þótt stundum sé rætt um þetta vatnasvæði sem tvær ...
Lesa meira »Reykjadalsá í Borgarfirði
Reykjadalsá í Borgarfirði er mörgum góðu kunn, en hún á upptök sín við rætur Oks og rennur um Reykholtsdal framhjá þeim sögufræga stað Reykholti. Áin sameinast svo Flókadalsá og renna þær saman í Hvítá við Svarthöfða. Ef komið er frá Reykjavík er beygt til hægri af þjóðvegi 1 áður en farið er yfir Borgarfjarðarbrúna og inn á Borgarfjarðarbraut (veg nr. ...
Lesa meira »Flókadalsá í Borgarfirði
Flóka, eða Flókadalsá er lítil bergvatnsá hefur einkenni bæði dragáa og lindáa. Hún á upptök í vestanverðu Oki, og fellur þaðan, 35 km. leið til Hvítár í Borgarfirði, rétt ofan við Svarthöfða. Flókan er laxgeng langleiðina til upptaka sinna og þveráin Engjadalsá að hluta. Meðalveiði áranna frá 1974 til 2008 er 363 laxar, minnst var veiðin 181 lax árið 1981, ...
Lesa meira »Laxá í Leirársveit
Laxá í Leirársveit er lindá í Borgarfirði í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Upptök hennar teljast í Eyrarvatni í Svínadal en í rauninni rennur hún milli allra vatnanna í Svínadal og heitir efst Draghálsá, þar sem hún fellur í Geitabergsvatn, síðan Þverá milli þess og Þórisstaðavatns og á milli Þórisstaðavatns og Eyrarvatns heitir hún Selós. Áin fellur svo um ...
Lesa meira »Laxá í Aðaldal- Nesveiðar
Laxá í Aðaldal Nessvæðið er margrómað veiðsvæði og er staðsett í um 12 km fjarlægð frá Húsavík. Til að komast á svæðið er ekinn er þjóðvegur 1 frá Akureyri til Mývatns. Við Húsavíkurafleggjara er beygt til vinstri niður með Skjálfandafljóti og ekið sem leið liggur að Aðaldalsafleggjara við Ýdali. Þar er ekið til hægri og strax aftur til vinstri inn ...
Lesa meira »Krossá á Skarðsströnd
Krossá er nett laxveiðiá og er staðsett á Skarðströnd í Dalasýslu í um 218 km. fjarlægð frá Reykjavík. Til að komast að Krossá er ekið er sem leið liggur um Norðurárdal, þjóðveg nr. 60 um Bröttubrekku og í gegnum Búðardal. Styst er að aka um Svínadal að Skriðulandi (Jónsbúð) í Saurbæjarhreppi og þaðan eftir Klofningsvegi nr. 590, út Skarðsströnd að ...
Lesa meira »Laxá í Dölum
Laxá í Dölum er bergvatnsá í Dalasýslu, í um 2 klst akstursfjarlægð frá Reykjavík, og ein af bestu laxveiðiám landsins. Áin kemur að hluta úr Laxárvatni á Laxárdalsheiði, sem er milli Hvammsfjarðar og Hrútafjarðar, og rennur um Laxárdal og til sjávar í Hvammsfirði, skammt sunnan við Búðardal. Margar litlar þverár og lækir falla í ána en hún er þó oft ...
Lesa meira »Tunguá í Borgarfirði
Tunguá er skemmtileg laxveiðiá og er í Borgarfirði, í um 70 km fjarlægð frá Reykjavík. Tunguá fellur í Grímsá á móts við Oddstaði og Brautartungu. Hún á upptök í vestanverðu Kvígyndisfelli, og er 20 km. löng. Um það bil 10 km. frá ármótum er Englandsfoss, 8 m. hár og ekki fiskgengur. Vatnasvið Tunguár 67 ferkm. Leiðarlýsing að Tunguá er uþb. ...
Lesa meira »Grímsá í Lundareykjadal
Grímsá er í Lundareykjadal, um 70 km vestur af Reykjavík. Ekinn er Vesturlandsvegur frá Reykjavík og rétt áður en komið er að Borgarfjarðarbrú er sveigt til hægri inn á þjóðveg númer 50. Er númer 50 ekinn þar til að komið er að vegamótum og er þá tekin vinstri beygja að Hvítárvöllum. Mjög fljótt eftir þessi gatnamót er vegarslóði til hægri ...
Lesa meira »Brynjudalsá
Brynjudalsá er lítil og nett laxveiðiá í Hvalfjarðarbotni. Frá Reykjavík er ekinn þjóðvegur 1 (Vesturlandsvegur) í átt að Hvalfjarðargöngum. Stuttu áður en komið er að göngunum er beygt til hægri og ekið inn Hvalfjörð yfir brúna yfir Laxá í Kjós og inn í Hvalfjarðarbotn. Brynjudalsá á upptök sín ofan Bryjudals og rennur til sjávar í Brynjudalsvog í Hvalfirði. Heildarlengd er ...
Lesa meira »Laxá í Kjós & Bugða
Laxá í Kjós er laxveiðiá sem á upptök í Stíflisdalsvatni í Þingvallasveit. Í ánni er fossinn Þórufoss og gengur lax upp að þeim fossi. Lengd Laxár er 25 km. Hún er í um 30 km. fjarlægð frá Reykjavík inn af Hvalfirði. Fyrsta laxaklak á Íslandi var reynt í Laxá árið 1884. Frumkvæði að þeirri tilraun átti Þorkell Bjarnason prestur á ...
Lesa meira »Kárastaðaá
Kárastaðaá er í Álftafjirði í um 20 km fjarlægð frá Stykkishólmi. Áin rennur í Álftafjörð og er við Snæfellsnesveg nr. 54. Ef komið er niður Vatnaleið í átt að Stykkishólmi er beygt til hægri og fylgt vegi nr. 54, 10 km þangað til komið er að brú sem liggur yfir Kársstaðaá. Hægt er að komast að Kársstaðaá, hvort sem menn ...
Lesa meira »Elliðaár í Elliðarárdal
Elliðaár eru ár sem renna frá Elliðavatni skammt frá Reykjavík, um Elliðaárdal og út í Faxaflóa. Árnar kvíslast og því heita þær Elliðaár en ekki Elliðaá. Elliðaárnar eru lindár sem koma úr lindum við Elliðavatn, í Heiðmörk og á Mosfellsheiði. Meðalrennsli ánna er um 5 m3/s. Árnar og vatnið eru kenndar við skip Ketilbjörns gamla landnámsmanns sem getið er í ...
Lesa meira »Fáskrúð í Dölum
Fáskrúð í Dölum er fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi laxveiðiá sem er staðsett 10 km norðan Búðardals í um 165 km fjarlægð frá Reykjavík. Fáskrúð skilur að Laxárdalshrepp og Hvammssveit en áin á upptök sín á Gaflfellsheiði tugi kílómetra frá sjó og fellur svo til sjávar í Hvammsfjörð um 8 km fyrir norðan Búðardal. Áin liðast ein um 20 km leið ...
Lesa meira »