Umsögn Veiðistaðavefsins
Verð veiðileyfa
Aðkoma að veiðistöðum
Umhverfi
Almenn ánægja
Mjög gott
Umsögn : Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.
Til hans fellur auk Hróarsholtslækjar, Baugstaðaá sem kemur úr Skipavatni og eru veiðimörk við útfallið úr vatninu.
Fiskur gengur bæði um ósinn í Hróarsholtslæk (Vola) og Baugstaðaá en Baugstaðarós er fornfræg veiðistöð einkum fyrir góða sjóbirtingsveiði.
Fiskurinn er blandaður að stærð eða frá 1 pundi upp í 16 punda bolta. Þegar göngur koma í Baugstaðarós er oft mjög líflegt og má segja að ósinn kraumi af fiski þegar mest er um að vera.Nokkrir laxar koma einnig á land á hverju sumri, flestir á bilinu 5-10 pund.
Þá er ótalin sjóbleikja sem lítillega verður vart við bæði í ósnum og einnig í Vola og gæti verið spennandi fyrir áhugasama fluguveiðimenn að kanna betur, t.d. snemma að vori.
Veiðisvæðið nær frá brú skammt fyrir ofan veiðihús niður í sjó og frá útfalli Skipavatns. Sjá nánar á veiðikorti hér til hliðar.
Þá má nefna mikið fuglalíf við ósinn sem gerir hann að skemmtilegum stað að dvelja við á góðum degi.
Veiðisvæðið við Baugstaðarós er tiltölulega stutt og er með 10 merkta veiðistaði sem allir hafa sín sérkenni.
Veiðistaðir 1 og 2 eru beint fyrir framan veiðihúsið.
Stuttu neðar og á leiðinni niður í ós er veiðistaður 3 sem án ef er sá fallegasti á svæðinu. Hér getur fiskur legið í strengnum, sem og upp við bakka. Þægilegt er að veiða þetta með upstream aðferðinni.
Veiðistaður 4 og 5 eru svotil niðri í ós, og er veiðistaður 5 oft kallaður Bugða. Bugða er nokkuð stór hylur og getur hann geymt mikið magn fisks. Þetta er einn af aflahæstu stöðum Baugstaðaróss. Veiðistaður númer 4 er strax fyrir ofan og er um að ræða streng þar sem fiskurinn getur legið í.
Veiðistaðir 6 og 7 eru upp við Skipavatn. Þessir staðir eiga það til að litast illa í miklu roki og í rigningum.
Veiðistaður 10 er einn af vinsælli veiðistöðum svæðisins og getur þessi veiðistaður verið ævintýranlegur þegar fiskur er að ganga, en þetta er hinn eiginlegi ós. Neðst á þessum veiðistað myndast lítill foss þegar fjarar, en í flóði hverfur fossinn og fiskur gengur inn. Fyrir ofan fossinn er stór og langur hylur, eða veiðistaður, og þar getur fiskur legið um allt, og sér í lagi rétt eftir göngu.
Baugstaðarós – vinsælar flugur:
Góðar flugur má nefna Flæðamús, Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn, auk ýmissa annarra púpa.
Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, wc, raflýsing (sólarrafhl.), gashitun, gashellur o.fl. Veiðimenn skulu rýma húsin fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00.
Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl
Daglegur veiðitími er frá 07.00 – 22.00. Veiðileyfi gildir frá kl. 20.00 – 22.00 kvöldið fyrir veiðidag og frá kl. 07.00 – 20.00 að kvöldi veiðidags.
Veiðileyfið gildir fyrir 2 stangir og aðgang að veiðihúsi.
Frá 1. júní til 9. október má veiða á flugu, maðk og spón. Eftir það er eingöngu heimilt að veiða á flugu og ber að sleppa öllum sjóbirtingi á þessum tíma.
Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Umsjónarmenn / veiðiverðir: Ólafur Ottó Erlingsson, Baugstöðum 849-2187 Steingrímur Ólafsson 897-3447 Jón Birgir ristjánsson 695-9273