Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Aravatn á Skagaheiði

Aravatn á Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Aravatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar.

Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina.

Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.

Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Aravatn er eitt vatnið sem hægt er að fá veiðileyfi í á bænum Hraun. Þetta vatn er allstórt, eða um 1,9 km2 að flatarmáli og liggur í 130 m yfir sjávarmáli.

Nesá fellur úr því í Efra-Nesvatn, og þaðan í Hörtnárvatn. Aravatn er nokkuð grunnt en í því er mikið af fiski, bæði bleikju og urriða.

Bleikjan er hinsvegar fremur smá, og er algeng stærð hennar um 300 gr. Urriðinn getur hinsvegar orðið vænn.

Veiðihús er við vatnið sem hægt er að leigja, en þar eru svefnpláss fyrir allavega 6 ~ 8 manns.

Aðgengi að vatninu er eftir 10 km jeppaslóða sem ekki er beint álitlegur.

Veiðileyfi og upplýsingar er hægt að nálgast á bænum Hraun.

Aravatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...