Hraunsvatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.
Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.
Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.
Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.
Hraunsvatn er um 0,5 km2 að flatarmáli og er eitt af mörgum veiðivötnum sem bærinn Hraun á Skaga selur veiðileyfi í. Hægt er að komast að vatninu eftir 3 km löngum jeppaslóða.
Utan Hraunsvatn er einnig seld veiðileyfi í vötnin Aravatn, Kelduvíkurvatn, Hörtnárvatn, Ölvesvatn, Steinatjörn, Neðstavatn, og Djúpavatn, og Kolluvatn.
Öll þessi vötn eru á norð-austanverðum Skaga og eiga það sameiginlegt að vera fremur grunn.
Bæði bleikja og urriði eru í þessum vötnum, frá 1 til 2 pund að stærð, en þó er einungis bleikja í Kolluvatni.
Leyfi í önnur vötn eru seld sérstaklega.
Hraunsvatn – vinsælar flugur: