Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Selvatn nyrðra – Skagaheiði
  • Selvatn nyrðra

    Frábært veiðivatn á Skagaheiði

Selvatn nyrðra – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Selvatn nyrðra er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Selvatn nyrðra er staðsett á norð-vestanverðri Skagatánni í um 70 m yfir hæð yfir sjávarmáli, tiltölulega grunnt og 0,9 km2 að flatarmáli.
Bæði bleikja og urriði eru í vatninu í nokkuð miklu magni sem er sagður allvænn.
Netaveiði er stunduð í vatninu enda nauðsynlegt að jafnvægi á silungastofninum í vatninu.

Einungis er fært fyrir góða jeppa að vatninu en um 3 km langur jeppaslóði liggur þangað, en við vatnið er skáli sem hægt er að fá upplýsingar um hjá Vigni Sveinssyni á bænum Höfnum.
Veiðiréttur, upplýsingar og veiðileyfi er á bænum Höfnum hjá Vigni A. Sveinsyni.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Selvatn nyrðra – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...