Vífilsstaðavatn er í Garðabæ, austan við Vífilsstaði, er í 38 m. hæð yfir sjávarmáli og mælist um 0,27 km2 að flatarmáli. Þetta litla vatn er mjög vinsælt meðal veiðimanna og þykir mörgum ómissandi að fara þangað á vorin til að fá fyrstu tökur ársins, en einnig til að fara yfir veiðibúnaðinn fyrir sumarið.
Þess má einnig geta, að Vífilsstaðavatn er tilvalið til að æfa fluguköst.
Í vatninu fæst einkum urriði og bleikja. Mest er um smábleikju, en einnig veiðist töluvert af stærri fiski, yfirleitt 1-2 pund. Fiskurinn úr vatninu er mjög góður matfiskur.
Heimilt er að veiða í öllu vatninu. Best er að veiða sunnanmegin í vatninu, en einnig undir hlíðinni að norðaustanverðu.
ATHUGIÐ AÐ BANNAÐ ER AÐ VEIÐA Á MERKTU SVÆÐI NORÐANMEGIN Í VATNINU vegna verndunar Flórgoðans. – Sjá kort. hér til hliðar
Daglegur leyfilegur veiðitími er frá kl. 8 til kl. 24. allt tímabilið sem hefst 1. apríl og nær til 15. september, en jafnan veiðist best á vorin, í maí og júní.
Einnig er hægt að sækja um leyfi til dorgveiði á ís. Dagsveiðileyfi er hægt að kaupa í Þjónustuveri Garðabæjar á Garðatorgi 7 á kr. 1.000.-
Löglegt agn á Vífilstaðavatni er fluga, maðkur og spónn.
Vinsælar flugur: