Kleifarvatn í Breiðdal er í 600 km fjarlægð frá Reykjavík, og um 75 km frá Egilsstöðum, og er staðsett í Breiðdal við þjóðveg 1, skammt frá Breiðdalsvík.
Vatnasvæðið, sem inniheldur Kleifarvatn og Mjóavatn, er stutt frá þjóðvegi 1 og í námunda við Breiðdalsvík, á móts við eyðibýlið Ytri-Kleif. Kleifarvatn í Breiðdal er tæplega 1 km2 að flatarmáli. en Mjóavatns um 0,15 km2.
Kleifarvatn í Breiðdal geymir allvænan urriða í vatninu og er algeng stærð um 2 pund, og allt að 5 pund. Ekki er stunduð netaveiði í vatninu svo vitað sé til.
Veiða má á öllum bökkum vatnsins, og er heimilt að veiða með flugu, maðki, og spón.
Veiðitímabil Kleifarvatns er frá 1. maí ár hvert til 31. september, og má veiða allan sólarhringinn.
Nokkuð jöfn veiði er yfir daginn að sögn.
Kleifarvatn í Breiðdal – Vinsælar flugur: