Arnarvatn er eitt þriggja vatna innan Veiðikortsins á Melrakkasléttu. Hin vötnin eru Hraunhafnarvatn, og Æðarvatn.
Þessi vötn eru í Norðurþingi á Melrakkasléttu, og er Arnarvatn ferkar smátt og grunnt, eða 1 km² að stærð. Mesta dýpt er um 3 m.
Fjarlægð er um 610 km. frá Reykjavík sé farið um Hólaheiði og 5-10 km. frá Raufarhöfn. Fyrir þá sem ætla í Arnarvatn þá er töluverð ganga þangað eða um 500 m. frá nyrðri enda Æðarvatns þar sem er ágætt að leggja bílum.
Veiði er heimil í landi Skinnalóns og má sjá merkingu á korti hvar má veiða. Í Arnarvatni er best að veiða á töngum, sem skaga út í vatnið á nokkrum stöðum.
Mikill fiskur er í vatninu, ½ ~ 3 punda bleikju sem er að finna um allt vatn, og 1-4 punda urriða.
Leyfilegt er að veiða með maðki, flugu, og spón í Arnarvatni.
Arnarvatn – vinsælar flugur: